mánudagur, ágúst 28

Og þessari lýkur brátt....


Pétur Már Gunnarsson frá Íslandi , Johann Maheut frá Frakklandi og Toshinaro Sato frá Japan standa saman að sýningunni Of course it welcomes the foreigner, the boundary

Með hliðsjón af landfræðilegri og menningarlegri legu Íslands, samtímis á mörkum og í fararbroddi listasenunnar, verða hugtökin ,,mæri" og ,,þröskuldur", ,,rammi" og ,,yfirborð" kölluð á teppið og þau borin saman við framsetningu og skynjun.

Það þarf aðeins að taka örfá skref í viðbót til að standa samhliða afskræmdum einfaldleika samhverfa Péturs Más Gunnarssonar, en þá þyrfti líka að grípa fyrir augun í öllum þeim kröppu beygjum sem Johann Maheut býður upp á í verkum sínum, sem stundum felast og stundum laumast á braut....

Jafnframt þessu sýnir Toshinari Sato röð ljósmynda sem teknar eru víðsvegar um heiminn: fyrirmyndin leysist upp í ljós og liti, fyrirbæri sem kalla má sam-mannleg, og eru algjörlega sneyddar vísbendingum um hvar myndatakan átti sér stað.

Gestum er boðið að feta þennan slóða eins og línudansari frá einum skilaboðum til annarra.

Annar hluti sýningarinnar mun fara fram í Frakklandi 2007 og munu þá fleiri íslenskir listamenn slást með í förina.

Pétur Már Gunnarsson hefur haldið fjölda sýninga hér á landi og erlendis. Hann stundaði nám við Listaháskóla Íslands og við Listaakademíuna í Vínarborg. Um skeið var hann stjórnarformaður Nýlistasafnsins.

Johan Maheut starfar í París og hefur sýnt víða um heim. Hann vinnur fyrst og fremst með innsetningar og ljósmyndir.

Toshinari Sato stundaði nám við listaháskólann í Tókýó og við listaháskólann í Grenoble í Frakklandi. Hann hefur sýnt víða um heim og nú síðast í MASATAKA HAYAKAWA galleríinu í Tókíó.

Sýning þeirra stendur til 3. september

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home