fimmtudagur, febrúar 16

Ég gleymdi mér

Það henti mig um daginn, þegar ég kom heim eftir eitthvert útstáelsi og var sestur við mitt vinnuborð hvar ég löngum dvel að ég uppgötvaði mér til undrunar að ég hafði aldrei farið neitt. Enn í dag veit ég ekki hvort ég var eða fór, en leyfi mér stundum að gæla við þá hugmynd að ég hafi gert bæði. Það er, þegar á allt er litið, ekki svo ósennilegt.

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Doch merk ich itzo, dir mein Junge,
dir klebt der Aufruhr auf der Zunge!

15:29  
Blogger gulli said...

þær kveikja í mér þessar færslur, félagi, og ég brenn í eldi þeirra enn.

hvert orð eins og meitlað í sál mína,
frá honum til mín

..vini mínum í vín.

13:47  

Skrifa ummæli

<< Home