mánudagur, ágúst 28

Og þessari lýkur brátt....


Pétur Már Gunnarsson frá Íslandi , Johann Maheut frá Frakklandi og Toshinaro Sato frá Japan standa saman að sýningunni Of course it welcomes the foreigner, the boundary

Með hliðsjón af landfræðilegri og menningarlegri legu Íslands, samtímis á mörkum og í fararbroddi listasenunnar, verða hugtökin ,,mæri" og ,,þröskuldur", ,,rammi" og ,,yfirborð" kölluð á teppið og þau borin saman við framsetningu og skynjun.

Það þarf aðeins að taka örfá skref í viðbót til að standa samhliða afskræmdum einfaldleika samhverfa Péturs Más Gunnarssonar, en þá þyrfti líka að grípa fyrir augun í öllum þeim kröppu beygjum sem Johann Maheut býður upp á í verkum sínum, sem stundum felast og stundum laumast á braut....

Jafnframt þessu sýnir Toshinari Sato röð ljósmynda sem teknar eru víðsvegar um heiminn: fyrirmyndin leysist upp í ljós og liti, fyrirbæri sem kalla má sam-mannleg, og eru algjörlega sneyddar vísbendingum um hvar myndatakan átti sér stað.

Gestum er boðið að feta þennan slóða eins og línudansari frá einum skilaboðum til annarra.

Annar hluti sýningarinnar mun fara fram í Frakklandi 2007 og munu þá fleiri íslenskir listamenn slást með í förina.

Pétur Már Gunnarsson hefur haldið fjölda sýninga hér á landi og erlendis. Hann stundaði nám við Listaháskóla Íslands og við Listaakademíuna í Vínarborg. Um skeið var hann stjórnarformaður Nýlistasafnsins.

Johan Maheut starfar í París og hefur sýnt víða um heim. Hann vinnur fyrst og fremst með innsetningar og ljósmyndir.

Toshinari Sato stundaði nám við listaháskólann í Tókýó og við listaháskólann í Grenoble í Frakklandi. Hann hefur sýnt víða um heim og nú síðast í MASATAKA HAYAKAWA galleríinu í Tókíó.

Sýning þeirra stendur til 3. september

List er list er list


It will never be the same


Þegar spennan í boga Vilhjálms Tell þeytti af stað örinni sem rataði í epli á höfði sonar hans voru að verki öfl þau sem Ísak Newton skilgreindi í þyngdarlögmálinu og hinum þremur lögmálum hreyfingar. Hins vegar voru öflin sem knúðu Tell til þess að leggja líf sonar síns í hættu verk manna í leit að reglu og skipulagi. Þó hægt sé að fullyrða að tár sem fellur af hvarmi hafi hröðunina


þá er ógerlegt að gera formúlu sem útskýrir hvaða tilfinningar framkalla tárin. Höfuðlausn þeirra Tell feðga fólst í kunnáttu, nákvæmni og styrk, en ónotatilfinningin sem nagaði Vilhjálm og lét hann efast um eigið ágæti gerði þá höfuðlausn skammvinna. Þó var strax ljóst að ekkert yrði sem áður.

Í krafti þeim sem Newton skilgreindi og Tell skildi til fulls túlka Kristján Loðmfjörð og Pétur Már Gunnarsson forvitnina og efann sem eru grundvöllur veraldar undirorpna breytingum eins og þessi er sem við byggjum.

Kristján Loðmfjörð er þekktur af fyrri störfum hjá Lortinum, en flutti til Hollands þar sem hann nam við Myndlistarakademíuna AKE í Enschede. Þar kom hann af stað eigin útgáfufyrirtæki One more time for the people sem hefur staðið fyrir útgáfu tónlistarmyndbanda eftir hann sjálfan. Kristján er nýfluttur heim til Íslands, fullgildur myndlistarmaður og er nú í læri hjá Valgarði Bragasyni múrarameistara.

Pétur Már Gunnarsson hefur haldið fjölda sýninga hér á landi og erlendis. Hann stundaði nám við Listaháskóla Íslands og við Listaakademíuna í Vínarborg. Um skeið var hann stjórnarformaður Nýlistasafnsins, en þar gefur nú og fram til 3. september að líta sýninguna ,,of course it welcomes the foreigners, the boundary" sem hefur hlotið mikið lof og verið einkar vel sótt, en hana vann Pétur í samstarfi við Johann Maheut og Toshinari Sato. Samhliða opnuninni á Vesturvegg Skaftfells birtir Pétur nýtt verk á sýningunni ,,Guðs útvalda þjóð" í Kling og bang, Laugavegi.